Ársfundur VIRK 2012
Til baka
15.03.2012
Ársfundur VIRK 2012
Ársfundur VIRK verður haldinn fimmtudaginn 12. apríl 2012 kl. 8:00 til 12:00 í Hörpu í salnum Norðurljós. Dagskráin er
tvískipt. Fyrri hluti fundarins inniheldur fræðandi erindi og hefst hann með ávarpi Guðbjarts Hannessonar velferðarráðherra kl. 8:15.
Vigdís Jónsdóttir framkvæmdastjóri VIRK mun síðan fara yfir starfsemi VIRK á síðastliðnu ári og Ingibjörg
Jónsdóttir prófessor við Institute of Stress Medicine í Gautaborg mun halda erindi um reynslu og niðurstöður nýjustu rannsókna varðandi
forvarnir og starfsendurhæfingu vegna kulnunar og síþreytu á vinnustöðum. Kaffihlé verður frá kl. 10:30 til 11:00 og að
því loknu hefjast hefðbundin ársfundarstörf. Nánari upplýsingar um dagskrá ársfundarins er að finna hér.
Ársfundurinn er öllum opinn og einnig er hægt að taka einungis þátt í fyrri hluta fundarins frá kl. 8:00 – 10:30. Nauðsynlegt er að skrá þátttöku og það er hægt að gera hér (sjá einnig skráningarmöguleika hér til hægri á heimasíðunni).