Árangur í starfsenduræfingu - dregur úr fjölgun öryrkja
Til baka
31.05.2011
Árangur í starfsenduræfingu - dregur úr fjölgun öryrkja
Á heimasíðu ASÍ í gær var fjallað um starfsendurhæfingu hjá VIRK í samhengi við ummæli forstjóra TR um hægari
fjölgun öryrkja undanfarin ár. Þar segir m.a.:
"Aðilar vinnumarkaðarins hafa á undanförnum þremur árum unnið að uppbyggingu á starfsendurhæfingarþjónustu um allt land með stofnun og rekstri VIRK – Starfsendurhæfingarsjóðs. Eitt af höfuðmarkmiðum sjóðsins er að draga markvisst úr líkum á því að launafólk hverfi af vinnumarkaði vegna varanlegrar örorku með aukinni virkni, eflingu starfsendurhæfingar og öðrum úrræðum. Nú starfa um 30 sérhæfðir ráðgjafar í starfsendurhæfinguhjá stéttarfélögum um allt land og hafa þeir veitt 2100 einstaklingum ráðgjöf og þjónustu. Einstaklingum sem hafa þurft aðstoð við að komast aftur á vinnumarkaðinn eftir veikindi eða slys. Þjónustan er opin fyrir alla þá sem búa við skerta vinnugetu og stefna að aukinni þátttöku á vinnumarkaði og er notendum að kostnaðarlausu. Þjónustan er víðtæk og er hún veitt í samstarfi við fagaðila um allt land. Af þessum 2100 einstaklingum hafa um 600 nú lokið þjónustu og stærstur hluti þeirra hefur náð fullri vinnufærni og eru þátttakendur á vinnumarkaði í dag. Þessi þjónusta hefur fram að þessu eingöngu verið fjármögnuð af atvinnulífinu og hefur hún skilað miklum árangri bæði fyrir þá sem hennar njóta og fyrir samfélagið í heild sinni. Það er því áhugavert að skoða þessa miklu uppbyggingu í þjónustu á sviði starfsendurhæfingar í samhengi við þá staðreynd að dregið hefur verulega úr nýgengi örorku bæði hjá Tryggingastofnun ríkisins og hjá mörgum lífeyrissjóðum.
Einn af þeim aðilum sem vísar mörgum einstaklingum til ráðgjafa VIRK er Tryggingastofnun ríkisins. Ráðgjafar VIRK hafa haft umsjón með um 400 endurhæfingaráætlunum sem sérstaklega eru gerðar samkvæmt þeim kröfum sem TR gerir vegna greiðslu endurhæfingarlífeyris. Þessi þjónusta ráðgjafa VIRK er boðin fram og unnin í samvinnu við TR og má áætla að vinnuframlag ráðgjafa VIRK nemi nokkur þúsund klukkutímum á undanförnum tveimur árum. Við þetta bætist svo vinna annarra sérfræðinga og endurhæfingaraðila um allt land. Þessi þjónusta er innt af hendi og fjármögnuð af VIRK – Starfsendurhæfingarsjóði og hefur verið veitt Tryggingarstofnun að kostnaðarlausu.
Í þessu ljósi er athyglisvert að sjá forstjóra TR fjalla um hægari fjölgun öryrkja bæði í ársskýrslu sinni og í fjölmiðlum um helgina. Þar er ekki minnst einu orði á það mikla samstarf sem starfsmenn stofnunarinnar eiga við ráðgjafa og sérfræðinga VIRK í þessum málum heldur er stjórnvöldum og stofnunum ríkisins alfarið eignaður þessi árangur. Þetta er miður, því það hefur frá upphafi verið markmið aðila vinnumarkaðarins að eiga uppbyggilegt og jákvætt samstarf við TR og aðra opinbera aðila um þetta mikilvæga verkefni sem allir hafa svo mikla hagsmuni af að takist farsællega."