Fara í efni

Aðkoma ráðgjafa VIRK að gerð endurhæfingaráætlana

Til baka

Aðkoma ráðgjafa VIRK að gerð endurhæfingaráætlana

Eitt af hlutverkum ráðgjafa VIRK er að vinna starfsendurhæfingaráætlun með einstaklingum sem eru í þjónustu. Við upphaf þjónustu er unnið grunnmat sem m.a. felst í upplýsingaöflun um stöðu og líðan einstaklings, kortlagningu á styrkleikum og hindrunum og þarfagreiningu varðandi endurhæfingarleiðir. Í kjölfarið er í samráði við meðhöndlandi lækni og eftir atvikum aðra meðferðaraðila, sett upp áætlun um endurkomu til vinnu / starfsendurhæfingaráætlun. Þegar heilsufarsvandi er flókin fer einstaklingur í ítarlegra mat, svokallað sérhæft mat og byggir þá starfsendurhæfingaráætlun á niðurstöðum þess. Þegar einstaklingur í þjónustu VIRK hefur þörf fyrir endurhæfingarlífeyri frá Tryggingastofnun ríkisins kemur ráðgjafi að gerð, utanumhaldi og eftirfylgd með endurhæfingaráætlun.

Mikið er um að einstaklingum sé vísað til ráðgjafa vegna endurhæfingaráætlunar. Ráðgjafar VIRK geta ekki búið til endurhæfingaráætlun fyrir TR við fyrstu komu einstaklings til ráðgjafa. Ef bráð þörf er á framfærslu og læknir búinn að senda vottorð vegna endurhæfingarlífeyris til TR eru vinnureglur VIRK eftirfarandi:

Þegar einstaklingur kemur nýr inn í þjónustu og þarf endurhæfingaráætlun strax:

• Ráðgjafi metur samkvæmt vinnureglum VIRK hvort einstaklingur eigi erindi í og hafi þörf fyrir þjónustu VIRK. Ef ljóst er að svo sé hefst vinna við ráðgjöf og upplýsingaöflun í grunnmati. Sá læknir sem skrifar vottorð vegna endurhæfingarlífeyris ber ábyrgð á gerð fyrstu áætlunar ef einstaklingur er ekki kominn í þjónustu og grunnmat ekki hafið þegar vottorð er skrifað. Ráðgjafi getur tekið við utanumhaldi hennar og bætt við hana þegar kemur að endurnýjun. Einstaklingi er því bent á að snúa sér til læknis hvað varðar nauðsynlegar upplýsingar og gögn sem þurfa að sendast til TR til að bregðast við brýnni framfærsluþörf einstaklingsins.

• Ef um er að ræða endurnýjun endurhæfingaráætlunar til TR fær einstaklingur þau skilaboð að áætlun verði unnin í samvinnu við lækni eða annan meðhöndlandi aðila eftir atvikum. Ráðgjafi leitar eftir upplýsingum um þá áætlun sem hefur verið í gangi og áframhaldandi markmið hennar og vinnur áætlun út frá því.


Þegar ofangreint á við afhendir ráðgjafi einstaklingi eða sendir inn til TR (og eftir atvikum lækni viðkomandi) eftirfarandi staðfestingu:

„Einstaklingur er kominn í þjónustu hjá ráðgjafa VIRK. Unnið er að nánari upplýsingaöflun um stöðu og líðan einstaklings með Grunnmati ráðgjafa í samvinnu við lækni og meðhöndlandi aðila þannig að starfsendurhæfing geti orðið sem markvissust. Í framhaldi af því verður send endurhæfingaráætlun til TR fyrir einstaklinginn, í síðasta lagi eftir 2 mánuði."


Fréttir

06.06.2024
30.04.2024

Hafa samband