Fara í efni

Gott að virkja mannauðinn

Til baka
Ingibjörg Steinunn Ingjaldsdóttir
Ingibjörg Steinunn Ingjaldsdóttir

Gott að virkja mannauðinn

 „Það er tiltölulega stutt síðan ég kynntist starfsemi VIRK að ráði og mér finnst hún afskaplega jákvæð. Það er mjög gott að hægt sé að virkja fólk sem ella kynni að detta út af vinnumarkaði. Raunar er frábært að slík starfsemi skuli vera til. Þetta er gott fyrir alla." segir Ingibjörg Steinunn Ingjaldsdóttir, starfandi stjórnarformaður og annar eigenda Prentmets, í viðtali við ársrit VIRK.

„Þeir eiginleikar starfsmanna sem ég legg mikið upp úr eru að fólk sé áhugasamt, jákvætt og hafi  mikinn vilja til að leggja sig fram. Við höfum verið með starfsmenn með skerta starfsorku og líka fullfrískt fólk í vinnu. Þeir hafa komið frá Starfsorku, Vinnumálastofnun og VIRK. Einstaklingarnir hafa reynst jafn misjafnir og þeir eru margir og verið misjafnlega hæfir í þau störf sem við höfum haft upp á að bjóða.“

Hvernig er undirbúningi háttað fyrir komu þessara einstaklinga?
„Við fáum góðar upplýsingar um þann einstakling sem er að koma til okkar á vinnusamning. Fyrirtækið Sinnum ehf. hefur verið milligönguaðili fyrir fólk með skerta starfsorku sem kemur í gegnum vinnusamninga hjá VIRK en með styrk frá Tryggingastofnun. Sinnum hefur upplýst okkur vel um aðstæður, svo og nánustu aðstandendur sem hafa í sumum tilfellum verið mjög hjálplegir.“

Er nauðsynlegt að undirbúa allt samstarfsfólkið?
„Þetta er viðkvæmt mál. Ég er ekki viss um að alltaf þurfi mikinn undirbúning. Í raun er bara um að ræða nýtt fólk sem kemur til starfa. Í umræddum tilvikum veltum við þessu dálítið fyrir okkur. Niðurstaðan varð að aðeins deildarstjórar og nánustu samstarfsmenn voru upplýstir um samninginn. Þetta hefur gefist vel. Mikilvægt er að vitneskja sé fyrir hendi hjá þessum aðilum þegar um er að ræða fötlun eða veikindi, sem og hvernig þeir eigi að bera sig að og bregðast við ef eitthvað kemur upp á. Deildarstjórar og nánasta samstarfsfólk þarf að vera meðvitað um veikleika og styrkleika þessara einstaklinga. Einnig er mikilvægt að nánasti yfirmaður sé í góðu sambandi við náinn aðstandanda. Góð samskipti geta skipt öllu máli. Virðing og traust þurfa að ríkja á milli allra aðila svo viðkomandi einstaklingur, sem er til dæmis að koma frá VIRK, upplifi sig eins og aðrir, sem eru að hefja störf við eðlilegar kringumstæður.“

Fer meiri tími í að undirbúa komu svona einstaklings til vinnu en heilbrigðs einstaklings sem er nýráðinn til starfa?
„Ég myndi ekki segja það. Aðalmunurinn er að maður þarf að útskýra fyrir nánustu yfirmönnum og starfsmönnum í hverju til dæmis fötlunin eða veikindin felast, ef um er að ræða skerta starfsgetu.“

Olweusaráætlunin leiðarljós
Er eitthvað í stefnu fyrirtækisins sem hvetur það til að taka á móti einstaklingum með skerta  tarfsgetu í vinnuprófun, á vinnusamning eða í vinnu?
„Starfsmannastefnan okkar á líka við fólk með skerta starfsgetu. Hún er mótuð þannig að hún stuðli að öryggi, virðingu, hjálpsemi og trausti meðal starfsmanna, svo og góðri samvinnu starfsfólks og góðum vinnuanda. Lögð er áhersla á að starfsfólk vinni sem ein góð liðsheild. Að það vinni vel og því líði vel og hafi góða vinnuaðstöðu. Við leggjum áherslu á að jafnréttis sé gætt. Einnig erum við með eineltisáætlun, erum raunar fyrsta íslenska fyrirtækið sem hefur haft Olweusaráætlunina gegn einelti að leiðarljósi. Það er eindregin stefna Prentmets að starfsmenn sýni samstarfsfólki sínu alltaf kurteisi og virðingu í samskiptum. Þess má geta að við erum með Prentmetsskóla. Markmiðið með þeim skóla er að upplýsa starfsmenn um stefnu fyrirtækisins og þá starfsemi sem fram fer í hverri deild. Starfsmenn sem komið hafa úr samstarfi við VIRK hafa sótt þennan skóla. Eftir að hafa sótt hann eru starfsmenn mun kunnugri allri þeirri starfsemi sem fram fer í fyrirtækinu. Það eykur líka virðingu starfsfólks fyrir störfum hvers annars.“

Hafa einstaklingar á vinnustaðasamningi fengið áframhaldandi vinnu hjá Prentmeti eftir að greiðslum frá TR er lokið?
„Í einu tilfelli fór einstaklingur á vinnustaðasamning í eitt ár og fékk síðan framtíðarráðningu í 100 prósent vinnu. Viðkomandi hefur nú verið hjá okkur í þrjú ár og er að fara á námssamning hjá okkur sem prentari. Hann kom til okkar frá Vinnumálastofnun, hafði misst vinnu á fyrri vinnustað í efnahagshruninu og fór á bætur. Þá fékk annar einstaklingur með vissa fötlun fastráðningu, en styrkur frá TR er með honum að hluta.

Einnig starfar hjá okkur einstaklingur frá VIRK sem var með skerta starfsorku vegna veikinda. Hann var á vinnustaðasamningi með greiðslu frá TR í eitt ár. Hann sannaði sig á þeim tíma, gerði sig beinlínis ómissandi og er nú kominn í fasta fimmtíu prósent vinnu. Þessir einstaklingar standa sig vel, hver á sinn hátt. Okkur finnst eðlilegt að tillit sé tekið til þess að fólk sem á við vandkvæði að etja vinnur hægar og þarf meiri tilsögn en aðrir.“

Hvernig gengur að aðlaga vinnu að fólki með skerta starfsgetu?
„Fólk sem hefur skerta starfsgetu eða stríðir við veikindi getur oft ekki gengið í hvaða verk sem er. Vissulega getur þá komið upp óþolinmæði hjá annars umhyggjusömum samstarfsmönnum. Reyndar er mjög misjafnt eftir einstaklingum hvernig hlutirnir ganga fyrir sig. Sumir þurfa miklu meiri stuðning en aðrir. Mikið álag getur orðið fyrir bæði deildarstjóra og samstarfsmenn að vera með einstakling með mikil frávik.

Hvað slíka starfsmenn varðar tel ég fullkomlega eðlilegt, ef vel á að ganga og fyrirtækið að geta réttlætt ráðningu, aðTryggingastofnun taki alltaf að hluta þátt í launakostnaði þeirra. Starfsgetan er skert og hluti af vinnutíma annarra starfsmanna fer í að aðstoða viðkomandi. Alltaf þarf að meta hvað starfsgetan er mikið skert miðað við fullfríska, heilbrigða starfsmenn. Þetta er þýðingarmikið, því launakostnaður er mjög hátt hlutfall í rekstri okkar fyrirtækis.

Fyrirtæki á borð við Prentmet eru í mikilli samkeppni og hvert stöðugildi og hver króna skiptir máli. Mikið framboð er af góðum starfsmönnum sem óska eftir að vinna hjá okkur. Vissulega eru samningar af þessu tagi gefandi, en þá þarf ríkið líka að meta það og taka þátt í kostnaði ef vel á að fara. Það ætti að vera mun betra fyrir einstaklinginn að hafa hlutverk, vera hluti af vinnuhópi, heldur en að vera bara heima.“

Gott að virkja mannauðinn
Margir tengja þetta fyrirkomulag samfélagslegri ábyrgð fyrirtækja. Í hverju felst kostnaðurinn og hver er ávinningurinn?
„Þetta fer algjörlega eftir því hvernig einstakling við fáum og hvað hann er fær um að gera, eða með öðrum orðum, hversu skert starfsgeta hans er. Sé einstaklingur hjá okkur á hundrað prósent styrk er alveg hægt að réttlæta þennan kostnað. Hins vegar þarf gott mat hjá þeim einstaklingum sem eru með skerta starfsgetu. Styrkurinn með starfsmanninum er alltaf skertur hjá Tryggingastofnun. Kostnaðarsamt getur verið fyrir fyrirtækið að mæta þessu.

Aftur á móti er ímyndarlega séð mjög jákvætt fyrir fyrirtæki að taka þátt í að virkja mannauðinn og starfsgetuna í samfélaginu. Því er mikilvægt að stjórnvöld mæti fyrirtækjum, ekki aðeins með viðeigandi styrk, heldur einnig með því til dæmis að lækka tryggingagjald, hækka tolla á erlendu prentverki og lækka tolla á hráefni. Það er mjög erfitt að reka iðnfyrirtæki á Íslandi. Að mínu mati má að vissu leyti líta svo á að það sé hluti af samfélagslegri ábyrgð að kaupa íslenskt prentverk.

Vissulega er ávinningur að fá aðila á vinnustaðasamning, sem eru viljugir og duglegir og geta orðið mjög hæfir framtíðarstarfsmenn, bæði fyrir viðkomandi fyrirtæki og ekki síður fyrir samfélagið.“

Telur þú að fyrirtæki séu tilbúin að taka fólk í vinnuprófanir með framtíðarvinnu í huga, ef greidd eru laun fyrir, eða bara í vinnuprófanir án launa?
„Líklega er allur gangur á því. Þetta fer algjörlega eftir fyrirtækinu og þeim aðila sem um er að ræða. Sum fyrirtæki líta kannski svo á að með þessu fáist frítt vinnuafl. En þetta snýst ekki um slíkt, því vinnustundir hjá öðrum fara í að aðstoða og þjálfa starfsmann með skerta starfsgetu. Með góðu samstarfi starfsmanns, vinnustaðar, VIRK og Tryggingastofnunar getur góður árangur náðst fyrir alla aðila. Þegar vel tekst til gæti verið mjög heppilegt að fá viðkomandi til framtíðarstarfa, ef fyrirtækið hefur tök á að fjölga starfsmönnum.“

Viðtalið í heild sinni má sjá í ársriti VIRK Starfsendurhæfingarsjóðs 2014.
Texti: Guðrún Guðlaugsdóttir


Fréttir

06.06.2024
30.04.2024

Hafa samband