Starfsendurhæfing öflugasta sparnaðartækið
Starfsendurhæfing öflugasta sparnaðartækið
„Það er mikið vandamál að lenda á örorkubótum og starfsendurhæfing er bæði mikilvæg fyrir þjóðfélagið og örorkuþega,“ segir Þorsteinn Víglundsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, í frétt á mbl.is.
Í innleggi Þorsteins á hádegisfundi SA kom m.a. fram að vísbendingar séu um að vinnumarkaðurinn á Íslandi muni skreppa saman eftir um áratug og erfiðara verði því að manna hagvöxt í landinu. Ástæðan sé hækkandi meðalaldur þjóðarinnar og mikil örorkubyrði en hlutfall fólks á Íslandi sem horfið hefur af vinnumarkaði vegna þess að það er metið sem öryrkjar er á meðal þess hæsta sem þekkist. Níu prósent þjóðarinnar eru í dag örorkuþegar, hlutfallið hefur farið hratt vaxandi á liðnum árum.
Fjárframlög ríkisins og lífeyrissjóða í örorkubyrði hafa tvöfaldast á undanförnum árum og nema um 50 milljörðum á ári. Það er með allra hæstu útgjöldum sem þekkist eða um 2,7 prósent landsframleiðslunnar. Þrátt fyrir þetta þá er það staðreynd að stjórnvöld hér á landi verja nær engu fjármagni til starfsendurhæfingar á meðan öll önnur ríki innan OECD verja meiru. Í fréttinni bendir Þorsteinn á að að aukin framlög til starfsendurhæfingar séu öflugasta sparnaðartækið í þessum efnum.
Sjá fréttina á mbl.is í heild sinni hér.