Fara í efni

Hreyfing lykilatriði í góðri líðan

Til baka
Guðrún Guðmundsdóttir
Guðrún Guðmundsdóttir

Hreyfing lykilatriði í góðri líðan

Ráðgjafi VIRK hjá Sameinaða lífeyrissjóðnum að Borgartúni 30 er Guðrún Guðmundsdóttir. Hún tekur á móti blaðamanni með bros á vör og á skammri stundu nær hún að skapa nánd og hlýju sem hlýtur að vera mikilvægur eiginleiki í slíku starfi sem hún gegnir.

Sameinaði lífeyrissjóðurinn er samansettur úr mörgum einingum. Innan hans vébanda er Byggiðn,  félag bókagerðarmanna, FIT (Félag Iðn- og tæknigreina), Verkstjórasamband Íslands,  Flugfreyjusamband Íslands, Flugvirkjafélag Íslands, Félag íslenskra atvinnuflugmanna, Félag tannlækna og aðstoðarfólks þeirra og Félag leiðsögumanna.

Þetta er langur listi og einsýnt virðist að Guðrún Guðmundsdóttir hafi í nógu að snúast sem ráðgjafi VIRK fyrir alla þessa aðila. En fyrst af öllu forvitnumst við um bakgrunn Guðrúnar.

„Ég lærði sjúkraþjálfun hér á Íslandi og lauk námi 1986. Næstu sjö ár vann ég hjá Borgarspítalanum á hinum ýmsu deildum. Síðan flutti ég austur í Ölfus og réð mig til starfa hjá Heilsustofnun  Náttúrulækningafélags Íslands. Þar vann ég svo í nítján ár. Þar kynntist ég mörgu fólki með ólíkan bakgrunn og þar vann ég að hluta sem úrræðaaðili fyrir VIRK. Raunar var ég á stofnfundi VIRK og hef fylgst með þeirri starfsemi síðan,“ segir Guðrún.

„Ég hafði líka kynnt mér áhrif streitu. Sá áhugi kviknaði vegna námskeiðs um svokallaðan hreyfiseðil. Það er meðferðarform sem mikið er notað í Svíþjóð og Ingibjörg Jónsdóttir lífeðlisfræðingur hefur  kynnt talsvert á Íslandi. Þá skildi ég að hreyfingu má nota ekki aðeins sem forvörn heldur líka sem meðferð við hinum ýmsu lífsstílssjúkdómum, sem eru afskaplega algengir, svo sem streita, þunglyndi og kulnun. Mikið álag getur verið í lagi í nokkurn tíma en ef það er of langvarandi getur heilsan farið úr skorðum. Mjög misjafnt er hvað einstaklingar þola vel álag. Það sem einn þolir er alltof mikið fyrir annan. Við getum þó þjálfað okkur upp og myndað þannig mótvægi gegn streitu. Þolþjálfun er til dæmis að ganga eða hjóla í tuttugu mínútur eða lengur.“

Hvað varð til þess að þú réðir þig til starfa hjá VIRK?
„Bætt var við ráðgjöfum hjá VIRK og ég sótti um á nokkrum stöðum og segja má að ég hafi lent hér fyrir tilviljun hjá Sameinaða lífeyrissjóðnum. Mér líkar starfið mjög vel. Það er skemmtilegt og öðruvísi en að hafa „hendur á sjúklingnum“ að hitta fólkið augliti til auglitis með skrifborðið á milli. En mér nýtist hér vel starfsreynslan sem sjúkraþjálfari. Óneitanlega er mikið um stoðkerfisvandamál hjá okkar skjólstæðingum. Önnur algeng vandamál eru kvíði, þunglyndi og kulnun, þá eru sálfræðiúrræði og námskeið slíku tengd mikilvæg. Sálfræðingar og sjúkraþjálfarar hafa brugðist við þessum vanda með því að setja upp hópnámskeið bæði gegn stoðkerfisvanda og andlegri vanlíðan. Við fáum svo gjarnan álit skjólstæðinganna á hvernig úrræðin virka. Um það spyrjum við grannt.“

Þú sinnir mörgum félögum, koma fleiri til þín úr einni atvinnugrein en annarri?
„Talsvert kemur til mín af fólki sem sinnir iðnaðarstörfum. Einnig kemur hingað bókagerðarfólk en tannlækni, leiðsögumann eða flugmann hef ég ekki fengið til mín enn. Einnig kemur hingað ungt fólk sem ekki hefur náð að fá réttindi að ráði í neinu félagi. Það hefur þá kannski unnið skamman tíma á hverjum stað, til dæmis með námi. Hingað hefur komið fólk á aldrinum frá 18 ára upp í 66 ára. Væntingar eru mjög misjafnar milli aldurshópanna. Mjög mikilvægt er að fólk fái stuðning til að koma sér á réttan kjöl hafi það dottið út af vinnumarkaðinum. Eðlilega er munur á möguleikum ungs fólks og þeirra sem komnir eru yfir sextugt, þeir síðarnefndu eiga stundum erfiðara með að fá vinnu. Þá þarf viðkomandi að búa yfir mikilli þolinmæði og þrautseigju.“

Lögð er upp áætlun í upphafi

Helst í hendur að fólk missi andlegan styrk við líkamlega vanheilsu?
„Já, oft er upphaflegi heilsubresturinn, sem ekki þarf að vera stór í byrjun, orsök þess að fólk missir sjálfstraustið ef það hefur verið frá vinnu í einhvern tíma. Fjarveran veikir þá sjálfsmyndina hvað vinnuþátttöku snertir. Í kjölfarið kemur kvíði og þunglyndi þó það hafi ekki verið upphaflega meinið. Stundum er ástandið þá orðið sambland af hvoru tveggja. Við byrjum samstarf við skjólstæðing á að leggja upp áætlun sem svo er lögð fyrir og samþykkt af sérfræðingum VIRK. Í áætluninni er tekið fram hvar áherslan á að vera, sem svo skilar sér til meðferðaraðila.“

Kemur sjúkraþjálfarinn ekki upp í þér stundum?
„Þegar ég spjalla við sjúkraþjálfara um skjólstæðing getur samtalið borist inn á faglegar nótur. En ég skoða aldrei einstakling heldur átta mig á sumum einkennum í viðræðum við hann. Oft kemur til mín fólk sem hefur orðið fyrir slysi og þannig dottið út af vinnumarkaði,  en líka er algengt að fólk hafi misst vinnu, til dæmis eftir bankahrunið og út frá því orðið fyrir heilsubresti. Ég er búin að vera eitt og hálft ár í starfi og hef þegar fylgt nokkuð mörgum einstaklingum í gegnum meðferð. Það var svolítið skrítið fyrst, þegar ég var ný í starfinu og margir einstaklingar voru að byrja samstarf við VIRK hjá mér. En svo fór ég að sjá ferlið þróast smám saman.“

Reynir svona starf ekki mikið á ráðgjafann andlega?
„Ég er svo heppin að ég fer daglega með vinkonu minni akandi úr Ölfusinu. Hún er líka sjúkraþjálfari og ráðgjafi hjá VIRK og við náum oft að vinda ofan af hinu daglega álagi með spjalli um líðan okkar. Veitum hvor annarri handleiðslu ef svo má segja. Heimkomnar erum við þá tilbúnar í heimilishaldið og samveru með fjölskyldunni. Ef ekki kæmi til einhvers konar handleiðsla gæti vinnan farið að fylgja manni heim.“

Hafið þið afskipti af fjármálum skjólstæðinga?
 „Nei, við vísum til þeirra aðila sem geta aðstoðað í slíkum efnum. Framfærslan kemur ekki inn á okkar borð nema þegar hún er farin að valda fólki áhyggjum og kvíða þannig að það geti ekki stundað endurhæfinguna. Kerfið er mikið völundarhús og oft hef ég hugsað að fólk þurfi í raun að vera við hestaheilsu til að finna út úr málunum þar. Þegar fólk er lasið, hefur misst frumkvæði og lokar sig af þá eru samskiptin við kerfið stundum næstum óyfirstíganleg hindrun. Margir verða reiðir þegar verið er að senda þá milli stofnanna og sífellt er krafist nýrra og nýrra vottorða. Sú reiði brýst þá kannski út á vettvangi sem hefur lítið sem ekkert með kerfið að gera. En við reynum eftir bestu getu að leiðbeina fólki til þess að það komist sem fyrst á réttu staðina. Þegar fólk verður að fá aðstoð hringjum við fyrir það. En reglan er að framfærslan sé á hendi einstaklingsins sjálfs. Það er líka hluti af endurhæfingunni að fólk finni út úr hlutunum sjálft hvað kerfið snertir. Þætti það niður í einingar sem ekki eru þá lengur óyfirstíganlegar til að sjá.“

Hreyfing er ódýrt úrræði

Á hverju byrjar þú í samstarfinu?
„Ég byrja á að skoða með fólki hvaða hindranir eru helstar, hvort svefninn sé í lagi, næringin eðlileg og hvort hreyfing sé í eðlilegum farvegi. Um er að ræða lykilatriði sem styðja hvert annað. Oft er gott að leita til hreyfistjóra sem starfa hjá heilsugæslum. Heilsugæslulæknar senda gjarnan fólk til VIRK. Í framhaldi af samþykktri áætlun vísa læknar svo skjólstæðingum til sjúkraþjálfara sem hjálpa fólki að meta getu sína og ætla sér ekki um of. Þeir finna út hvaða hreyfing hentar í hverju tilviki. Fylgst er með hverjum og einum og ef viðkomandi sinnir ekki hreyfingu sem skyldi er haft samband. Ég held að þetta sé það sem koma skal.

Sænskar rannsóknir sýna að fólk hreyfir sig fremur eftir hreyfiseðli heldur en að taka lyf eftir lyfseðli. Hreyfing er ódýrt úrræði sem reynist vel. Hún er ekki svar við öllu en hún er ákveðinn styrkur með þá öðrum úrræðum, svo sem t.d. lyfjagjöf og sálfræðimeðferð. Hreyfingin er líka eitt af þeim úrræðum sem skjólstæðingurinn getur haft góða stjórn á.

Mikilvægt er að skjólstæðingarnir hafi frumkvæði. Í uppfræðslu okkar ráðgjafanna hjá VIRK er lögð mikil áhersla á að við notum það sem kallað er áhugahvetjandi samtöl. Þá er grundvallaratriði að kortleggja styrkleika og hindranir og vita hvaða breytingar viðkomandi er tilbúinn til að fara í. Við reynum að glæða áhugahvöt, ef hún er ekki fyrir hendi gerist lítið. Oft þarf líka að huga að félagslífi viðkomandi og áhugamálum. Ef dofnar yfir fólki færist það gjarnan yfir á þann vettvang líka. Ef vel gengur kemur úr út þessu samstarfi aukinn áhugi á lífi og starfi og þátttaka á vinnumarkaði. Það er gaman að sjá sjálfstraust fólks aukast og það gerir starf ráðgjafans áhugavert og skemmtilegt.“

Viðtal: Guðrún Guðlaugsdóttir

Viðtalið birtist í ársriti VIRK 2015.


Fréttir

06.06.2024
30.04.2024

Hafa samband