Fjarvera frá vinnu - viðmið
Til baka
11.06.2012
Fjarvera frá vinnu - viðmið
Fjarvera starfsmanna frá vinnu er talin hafa töluverð tengsl við starfsánægju og hollustu starfsmanna. Óánægja í starfi hefur sterk tengsl
við óstundvísi, fjarvistir, sálfræðilegan og líkamlegan heilsuvanda starfsmanna. Þættir eins og kulnun í starfi, vaktaálag,
árekstrar milli einkalífs og vinnu og áhugamál starfsmanna utan vinnu hafa einnig verið tengdir við fjarvistir. Óhjákvæmilega hafa ýmsir
þættir í umhverfinu áhrif, eins og t.d flensur, en vinnumenning vinnustaðarins hefur einnig áhrif.
Bent hefur verið á að fólk hefur tilhneigingu til þess að vanmeta sínar eigin fjarvistir en ofmeta fjarvistir annarra. Stjórnendur og starfsmenn hafa þar af leiðandi oft mismunandi tilfinningu fyrir tíðni fjarvista. Auk þess leggja þessir hópar oft mismunandi skilning í það hvað teljist vera eðlilegar fjarvistir.
Til að skoða þetta nánar fól VIRK ráðgjafafyrirtækinu Attentus – mannauður og ráðgjöf að afla gagna um skilgreiningar og viðmið fjarveru frá vinnu á Íslandi og skoða þau í alþjóðlegum samanburð. Sjá nánar skýrslu Attentus um Fjarvistastjórnun.