Fara í efni

Um 10 milljarða ávinningur af VIRK á árinu 2013

Til baka
Rekstrarkostnaður og ávinningur VIRK
Rekstrarkostnaður og ávinningur VIRK

Um 10 milljarða ávinningur af VIRK á árinu 2013

Talnakönnun HF. kemst að þeirri niðurstöðu í nýútkominni skýrslu að starfsemi VIRK Starfsendurhæfingarsjóðs sé mjög arðbær. Um 10 milljarða ávinningur hafi verið af starfsemi VIRK árið 2013 sem skili sér til Tryggingarstofnunar, lífeyrissjóða og ríkisins að ótöldum ábata hvers einstaklings.
  
VIRK fékk Talnakönnun HF. til að greina árangur og hagnað af starfsemi VIRK árið 2013 út frá ópersónugreinanlegum upplýsingum úr gagnagrunni VIRK um þá 899 einstaklinga sem útskrifuðust úr þjónustu VIRK árið 2013 auk þess að unnið var með upplýsingar lífeyrissjóða um meðallaun. Markmiðið var að finna mælikvarða á sparnað af starfsemi VIRK sem taki mið af raunverulegum árangri undanfarin ár, árangri sem felst í að flýta endurhæfingu, stytta tímabil óvinnufærni einstaklinga og minnka tíðni örorku.

Talnakönnun gaf sér mjög varfærar forsendur um vinnumarkaðsþátttöku einstaklinga.  M.a. var ein forsendan sú að þeir einstaklingar sem voru á launum í veikindum, á bótum hjá sjúkrasjóðum stéttarfélaga eða á atvinnuleysisbótum við lok þjónustu hjá VIRK myndu hafa verið óvinnufærir í 5 ár ef VIRK hefði ekki notið við – en enginn þeirra hefði farið á varanlega örorku.

Mjög arðbær starfsemi
Þrátt fyrir varfærar forsendur kemst Talnakönnun að þeirri niðurstöðu að starf VIRK sé mjög arðbært.  Um 10 milljarða króna ávinningur hafi verið af starfsemi VIRK árið 2013 og ábatinn af starfseminni skili sér bæði til Tryggingastofnunar, lífeyrissjóða og ríkisins í formi aukinna skatttekna. Hagnaður lífeyrissjóða af starfi VIRK hafði numið nærri fimm milljörðum árið 2013, hagnaður Tryggingastofnunar hátt á fjórða milljarð króna og ríkið hafi fengið viðbótar skatttekjur upp á 1,5 milljarða króna. Ofan á þetta kemur svo bættur hagur einstaklinga, bæði fjárhagslegur auk þeirra lífsgæða sem felast í því að geta tekið þátt í samfélaginu.

Myndin hér að ofan setur í samhengi iðgjöld innheimt vegna starfsemi VIRK árið 2013, um 2 milljarða, og reiknaðan ávinning af stafseminni það árið (bláa súlan til hægri), 9,7 milljarðar. Við þetta má svo bæta að rekstrarkostnaður VIRK var 1,3 miljarðar á árinu 2013.

Af ofantöldu er ljóst að árangursrík starfsendurhæfingarþjónusta eins og VIRK veitir er ein af allra arðbærustu fjárfestingum í okkar samfélagi, auk þess að styrkja einstaklinga og stuðla að öflugra samfélagi og aukinni velferð, og því mjög mikilvægt að standa vörð um uppbyggingu hennar til framtíðar.

Sjá skýrslu Talnakönnunar HF. um hagnaðinn af starfsemi VIRK 2013 í heild sinni hér.


Fréttir

18.10.2024
05.11.2024

Hafa samband