Fara í efni

Ráðstefna um atvinnumál blindra og sjónskertra á Íslandi

Til baka

Ráðstefna um atvinnumál blindra og sjónskertra á Íslandi

Þjónustu- og þekkingarmiðstöð fyrir blinda, sjónskerta og daufblinda einstaklinga stendur fyrir ráðstefnu um atvinnumál blindra og sjónskertra á Íslandi, föstudaginn 14. nóvember í sal Blindrafélagsins 2.hæð, Hamrahlíð 17 Reykjav. Ráðstefnan hefst kl. 09:00 og stendur til kl. 17:00. Farið verður yfir niðurstöður samantektar Miðstöðvarinnar um atvinnustöðu blindra og sjónskertra og hvaða þjónustuúrræði eru í boði fyrir blinda og sjónskerta í atvinnuleit. Þá munu blindir og sjónskertir einstaklingar á vinnumarkaði segja frá reynslu sinni auk atvinnurekenda. Hádegisverður í boði Miðstöðvarinnar.

Aðgangur er ókeypis en skráning fer fram hjá Miðstöð í síma 545 5800 eða á midstod@midstod.is til og með 12. nóvember. Við skráningu þarf að koma fram nafn, netfang, símanúmer, vinnustaður og hvort viðkomandi  þiggur  hádegisverð. Ef óskað er eftir táknmálstúlkun þarf það einnig að koma fram við skráningu. Nánari upplýsingar veitir Steinunn í síma 545 5800 og á netfanginu steinunn@midstod.is

Dagskrá ráðstefnunnar:
Fundarstjóri: Huld Magnúsdóttir, forstjóri Þjónustu- og þekkingarmiðstöðvar fyrir blinda, sjónskerta og daufblinda einstaklinga.

09:00-09:10        Opnun ráðstefnunnar
                            Eygló Harðardóttir félags- og húsnæðismálaráðherra

09:10-09:20        Erindi frá Þjónustu- og þekkingarmiðstöð
                           Halldór Sævar Guðbergsson atvinnu- og virkniráðgjafi

09:20-10:00         Kynning á niðurstöðum úttektar Miðstöðvarinnar
                            Bryndís Sveinsdóttir sálfræðingur,
                            Elín Marta Ásgeirsdóttir náms- og starfsráðgjafi
                            Steinunn Sævarsdóttir félagsráðgjafi

10:00-10:15        Umræður og fyrirspurnir

10:15-10:30        Kaffi

10:30-11:45        Reynslusögur einstaklinga
                           Hlynur Þór Agnarsson starfsmaður Vodafone
                           Svanhildur Anna Sveinsdóttir starfsmaður Icelandair Hótel Akureyri
                           Guðjón Norðdahl starfsmaður Blindravinnustofunnar
                           Sandra Dögg Guðmundsdóttir starfsmaður Fiskvinnslunnar Drangs
                           Helgi Hjörvar alþingismaður

11:45-12:00        Umræður um reynslu fólks á vinnumarkaði

12:00-13:00        Hádegisverður

13:00-13:30        Reynslusögur atvinnurekenda
                           Heimir Þór Árnason deildarstjóri söluvers Vodafone
                           Sigrún Björk Jakobsdóttir hótelstjóri á Icelandair Hótel Akureyri

13:30-14:00        Hlutverk og áherslur VIRK starfsendurhæfingarsjóðs
                           Ása Dóra Konráðsdóttir sviðsstjóri starfsendurhæfingar

14:00-14:30        Þjónusta Vinnumálastofnunar við atvinnuleitendur með skerta starfsgetu
                           Margrét Linda Ásgrímsdóttir náms- og starfsráðgjafi og verkefnastjóri ráðgjafar
                           vegna skertrar starfsgetu.

14:30-15:00        Atvinna fatlaðs fólks í Reykjavík - nú og til framtíðar
                           Björk Vilhelmsdóttir formaður Velferðarráðs Reykjavíkurborgar og
                           Olga Björg Jónsdóttir verkefnisstjóri í þekkingarstöð um málefni fatlaðra hjá
                           Reykjavíkurborg.

15:00-15:30        Samantekt og umræður

15:30-17:00        Móttaka í boði Blindrafélagsins fyrir ráðstefnugesti


Fréttir

06.06.2024
30.04.2024

Hafa samband