Fara í efni

Nýjir ráðgjafar

Til baka

Nýjir ráðgjafar

Nýlega voru tveir nýjir ráðagjafar ráðnir til starfa fyrir stéttarfélög í samstarfi við VIRK:

Ólafur K. Júlíusson hefur verið ráðinn ráðgjafi hjá Eflingu stéttarfélagi. Ólafur er með MSc gráðu í vinnusálfræði frá Háskólanum  í Sheffield, en þar er lögð áhersla á kennslu hagnýtra og gagnreyndra aðferða ásamt rannsóknarmiðuðum verkefnum. Hann hefur fjölbreytta starfsreynslu og hefur m.a. starfað með einstaklingum í AMS (Atvinna með stuðningi) og unnið verkefni með Lögregluskóla ríkisins og Ríkislögreglustjóra tengd streitu, kvíða, þunglyndi og lífshamingju og starfsmannavali.

Inga Margrét Skúladóttir hefur verið ráðin ráðgjafi fyrir stéttarfélög á Suðurlandi. Inga Margrét  er með starfsréttindi í félagsráðgjöf frá H.Í. og hefur mikla starfsreynslu. Hún starfaði við félagsþjónustu á Selfossi og Kópavogi um árabil og hefur undanfarin ár starfað hjá Skólaskrifstofu Suðurlands.


Fréttir

06.06.2024
30.04.2024

Hafa samband