Fara í efni

Er allt í gulu á þínum vinnustað?

Til baka

Er allt í gulu á þínum vinnustað?

VIRK, embætti landlæknis og Vinnueftirlitið buðu upp á morgunfund um heilsueflandi vinnustaði á Teams miðvikudaginn 18. september undir yfirskriftinni „Er allt í gulu á þinum vinnustað?“.

Upptöku af fundinum má sjá hér.

Dagskrá

Heilsueflandi vinnustaður og geðrækt í gulum september

Hildur Guðný Ásgeirsdóttir, verkefnastjóri hjá embætti landlæknis

Höfuð herðar hné og tær - Vinnuvernd frá toppi til táar

Guðrún Rakel Eiríksdóttir, sérfræðingur hjá VIRK, og María Jónsdóttir sérfræðingur hjá Vinnueftirlitinu

Vörður að vellíðan í vinnu

Sara Hlín Hálfdanardóttir, sérfræðingur hjá Vinnueftirlitinu

Morgunfundurinn var 15. fundurinn í fundaröð um heilsueflingu á vinnustöðum og er hluti af samstarfi VIRK, Embættis landlæknis og Vinnueftirlitsins um heilsueflingu og forvarnir á vinnustöðum.

Markmið Heilsueflandi vinnustaðar er að stuðla að betri heilsu og vellíðan vinnandi fólks á vinnustöðum, fyrirbyggja kulnun og minnka brottfall af vinnumarkaði.


Fréttir

18.09.2024
06.06.2024

Hafa samband