Fara í efni

11% fleiri nýir í þjónustu og útskrifaðir 2020

Til baka

11% fleiri nýir í þjónustu og útskrifaðir 2020

Enn eitt árið í röð var aukning á nýjum í þjónustu hjá VIRK sem og þeim sem luku starfsendurhæfingu.

2.331 einstaklingar hófu starfsendurhæfingu á vegum VIRK á árinu 2020, 11,4% fleiri en árið á undan. 1.595, eða 11,7%, fleiri útskrifuðust frá VIRK 2020 en árið 2019. 2.611 einstaklingar voru í starfsendurhæfingarþjónustu á vegum VIRK um áramótin, um það bil jafnmargir og um síðustu áramót.

Um áramótin höfðu alls 19.358 hafið starfsendurhæfingu hjá VIRK frá því að fyrsti einstaklingurinn hóf starfsendurhæfingu á vegum starfsendurhæfingarsjóðsins haustið 2009.

11.710 einstaklingar hafa lokið þjónustu, útskrifast, frá VIRK frá upphafi og 76% þeirra eru virkir á vinnumarkaði við útskrift, eru með vinnugetu og fara annað hvort beint í launað starf, virka atvinnuleit eða lánshæft nám.

Árangur og ávinningur af starfsemi VIRK - fjárhagslegur og samfélagslegur - er mjög mikill þar sem starfsemin hefur á undanförnum áratug skilað þúsundum einstaklinga í virka þátttöku á vinnumarkaði.

Þennan árangur hafa utanaðkomandi aðilar staðfest, niðurstöður Talnakönnunar sýna t.d. að ávinningurinn af starfsemi VIRK á árinu 2019 nam 20,5 miljörðum og að reiknaður meðalsparnaður samfélagsins á hvern útskrifaðan einstakling frá VIRK nam 14,4 milljónum það ár.

Þá sýna þjónustukannanir VIRK að þátttakendur eru undantekningalítið mjög ánægðir með þjónustuna og telja hana auka verulega bæði lífsgæði sín og vinnugetu.

Sjá nánar upplýsingar um sögu VIRK, árangur og starfsemi.


Fréttir

18.10.2024
05.11.2024

Hafa samband