Auglýst eftir efni í ársrit VIRK
Til baka
05.01.2023
Auglýst eftir efni í ársrit VIRK
Ársrit VIRK verður venju samkvæmt gefið út á ársfundi VIRK sem haldinn verður 25. apríl nk. Þema ársritsins 2023 er endurkoma til vinnu.
Skýrsla framkvæmdastjóra og annar fróðleikur, frásagnir af starfsemi VIRK og viðtöl verða meðal efnis í ársritinu en auk þess verður sem fyrr boðið upp á fræðilega umfjöllun um starfsendurhæfingu í ársritinu.
Þeir sem hafa áhuga og þekkingu á málaflokknum og hafa hugmyndir að greinum og/eða umfjöllunarefnum eru beðnir um að hafa samband við ritstjórn, senda tölvupóst á eysteinn@virk.is.